Eldra efni
- 2007
Um:
Við eru dæmigerð íslensk fjölskylda, þ.e. barnið mitt, barnið þitt og börnin okkar. Við búum á Hólmavík, en Emil býr í NoregiTenglar
- Ljósið
- KrittiVitt
- Borgarhólsfamelían
- miss black magic woman
- Adda nýfarin að búa
- Skvetturnar Sigrún og Soffía
- Akureyrarbassinn
- JógaBass
- Snyrti Bassinn
- eurovision útvarpið
- Eurovision.tv
- Stars of Eurovision
- Esctoday
- Lára klára
- Kiðlingur
- Áróra
- Besta leikfélagið
- Kvennakórinn

Júlíana Steinunn 5 ára
atburður liðinn í
1 ár
2 mánuði
30 daga

Kristín Lilja 11 ára
atburður liðinn í
1 ár
1 dag

Jakob Ingi 13 ára
atburður liðinn í
1 ár
2 mánuði
28 daga

Guðbrandur Emil 22 ára
atburður liðinn í
7 mánuði

Andri Freyr 23 ára
atburður liðinn í
7 mánuði
9 daga

Sverrir 39 ára
atburður liðinn í
1 ár
5 mánuði
21 daga

Salbjörg 40C
atburður liðinn í
7 mánuði
12 daga
Blogg
31.12.2009
Ótitlað
Janúar-maí: Sverrir smíðaði fjölplóg á hjólið í desember og mokaði gangstéttir sem óður væri, eldri borgurum og barnavagnaökumönnum til mikillar ánægju. Strákarnir með tennurnar á plastdráttavélunum veittu honum mikla samkeppni. Salbjörg lenti í samstuði í fótbolta á íþróttadegi barnanna í skólanum svo stórsá á fótleggnum, en hann blés út sem bolti og varð helblár. Þar sást það enn og aftur að ég á ekki að taka þátt í þessu. Ég bíð aftur á móti eftir handavinnudegi skólans eða eitthvað álíka.. Börnin sóttu skíðaæfingar eins og áður og kepptu á nokkrum mótum, í apríl var farið á Andrésar leikana að venju. Þar sem fermingarveisla Jakobs Inga átti að vera heima, enda við með ekta veisluhús, var ákveðið að reyna að flikka upp á bæinn. Við settum parket í stað grábrúnblettótta stofuteppisins, áður hvíta. Frúin réði gamlan séns til að mála ganga og sali og Arnar Andrapabbi kom með fríðu föruneyti þ.e. konu sína Unni Malín og soninn Andra og lauk verkinu á nokkrum klukkutímum, meðan skruppum við til Reykjavíkur að útrétta fyrir ferminguna. Við þökkum Arnari enn og aftur fyrir þetta. Börn fæddust eitt af öðru á árinu hjá "litlu" systrum Sverris. Guðbrandur Snær Öllu og Vallason, öðru nafni Glæsir,fæddist 9. febrúar og Alla flutti hingað norður um það leiti. Hún er nánast fullnuma snyrtifræðingur og nú erum við öll spikk og span hér á Ströndum, förum reglulega í sjæn á Puntstofuna. Jóhanna og Steini eignuðust Þorstein Dag Newton 29. mars og ætla síðan að bæta öðru kríli við í febrúar 2010. Nóg að gera á þeim bænum. Ragna og Björn eignuðust einn sameiginlegan stráksa í lok apríl en þau eiga 5 börn fyrir. Þau eru á Akureyri, þannig að lítið er um að við skiptum okkur af þeirra uppeldi.
Maí-ágúst: Sauðburður var að venju í maí og Sverrir fór í smá "fæðingar"orlof af þeim sökum, mátti
Við heimsóttum Akureyri í júní í tilefni skírnar Elmars Nökkva Björnssonar og síðan tók undirbúningur fyrir Hamingjudagana við í lok júní. Ragna var hjá okkur með börnin í lok júní og Ingvar, Hulda og þeirra afkomendur heimsóttu okkur Hamingjudagahelgina, en þau höfðu verið á Lyngholti í pallasmíði. Nokkrir svangir vinir Andra fengu fæði og húsaskjól að venju. Furðuleikarnir voru haldnir og Ingvar keppti í staurakasti, krakkarnir í öskurkeppninni og við Sverrir í kvennahlaupinu að venju. Við erum löngu hætt að sigra það hlaup, kallinn verður nú ekkert yngri og ekki léttist kellan nú. Sverrir var allt sumarið í vegavinnu í Bitrunni og því var lítið um sumarfrí hjá honum , enda sleppir maður ekki svona vinnu ef hún býðst. Ég tók mitt sumarfrí á þann hátt að ég vann fyrir hádegi og var í fríi eftir hádegi, en ég tók þó 3 vikur í beit líka. Þetta kom einfaldlega betur út þar sem Júlíana var hætt á leikskóla og Kristín passaði hana þá fyrri part dagsins. Jakob var í unglingavinnunni og stóð sig vel þar og Andri var hreppari og flokkstjóri vinnuskólans þetta sumarið. Stefnt var að því hjá Strandabyggð að veita heimamönnum vinnu og Andri naut góðs af því eins og fleiir, enda erfiðara að fá vinnu fyrir sunnan. Hann skrapp þó viku til Danmerkur um miðjan júlí enda kominn með augastað á háleggjuðum farfugli þar, Ane Storch Jakobssen. Sverrir fékk sér smá sumarfrí eftir verslunarmannahelgina og við fórum á landsmót á Króknum þar sem krakkarnir kepptu í fótbolta (Jakob) og langstökki (Kristín). Alltaf gaman að fara á landsmót. Við vorum síðan á Akureyri í íbúðinni hennar Láru (enn og aftur bestu þakkir Lára) fram að Fiskideginum mikla og versluðum skóladót og fl. Eftir viðkomu á Dalvík á laugardeginum héldum við heim. Ég kvaddi elskulega ömmusystur og fyrrum nágranna Mummu í Bæjum er hún var borin til grafar um miðjan ágúst og síðar sama dag glöddumst við í brúðkaupi Adda og Hildar og áttum með þeim góða kvöldstund. Stefnumót á Ströndum var atvinnuvegasýning sem var haldinn í lok ágúst, þar ætluðum við að sýna landanum og já umheiminum öllum hvers við erum megnug. Hlaðin var varða til framtíðar við félagsheimilið og hleðslumenn voru valdir Sverrir Guðbrandsson f. 1921, Guðbrandur Sverrisson f. 1946, Sverrir Guðbrandsson f. 1969 og Jakob Ingi Sverrisson f. 1995. Fjórir ættliðir hjálpuðust að þennan dag við hleðsluna og má líta vörðuna augum við félagsheimilið. Gestir voru beðnir um að koma með steina með sér og komu steinar frá Bessastöðum m.a. og víðar.
Sept-des:
Júlíana Steinunn byrjaði í skóla í lok ágúst, hún var þó ekki alveg tilbúin lærdóminn fyrst, en þetta er allt að koma. Hún er farin að geta lesið aðeins og getur lagt saman og dregið frá. Salbjörg skellti sér á skrifstofubraut II í M.K, svona mest til að sanna það fyrir sjálfri sér að hún gæti þetta og eins til að reyna að sannfæra sig um að henni hlyti að finnast þetta skemmtiegt eins og "öllum" öðrum. Ég svo sem hélt áfram í öllu öðru félagsstarfi með skólanum, þannig að það var nóg að gera allt haustið en þessu lauk og ég fékk ágætis einkunnir, en ég sé það alveg að þetta heillar mig ekkert sérstaklega. Mig langar meira að halda áfram að læra að syngja, ætla frekar að stefna á að læra tónfræði og söng og taka stigspróf í því. En ég klára þessa braut vonandi í vor, en ég fékk mikið metið og er að taka þetta nám á einhverri hraðferð.
Göngur og réttir voru að venju þetta haust eins og önnur en Sverrir tók enga veltu á hjólinu þetta árið, Valli aftur á móti steyptist ofan í einhvern skurð á því á heimleið úr réttunum. Við Sverrir fórum á kóranámskeið í Reykholti í nóvember með kirkjukór Hólmavíkurkirkju og áttum þar góða helgi. Krakkarnir eru öll í tónskólanum, Jakob lærir á harmónikku og trompet, Kristín á þverflautu og Júlíana er á píanó. Þau standa sig ágætlega, þó stelpurnar séu samviskusamari við æfingar. Emil og Jennifer fluttu í eigið hús í Kristianssand á aðfangadag, þau eru bæði að vinna hjá sama fyrirtækinu, sem hannar og setur upp lofthreinsibúnað. Emil er vélaverkfræðingur og Jennifer tækniteiknari. Vonandi getum við heimsótt þau fljótlega, þegar kreppunni líkur, Icesavið greitt og fl. Andri kláraði grunndeild upplýsinga og fjölmiðlabrautar nú fyrir jólin með góðum einkunnum. Hann er að flytja til kærustunnar í byrjun janúar en hún á íbúð á Nörrebro í Kaupmannahöfn. Ane er í læknanámi og á eftir 1-2 ár í kanditatsárið ef ég hef skilið hana rétt, nú þarf maður aldeilis að dusta rykið af barnaskóladönskunni. Andri ætlar að leita sér að vinnu á leikskóla eða ehv. álíka þegar hann er kominn út. Kristín datt á svelli laugardaginn fyrir jól og verður í gifsi fram í byrjun febrúar. Við héldum að hún hefði tognað fyrst þar sem hún var stokkbólgin um ökklan, við sögðum henni bara að harka af sér, það væri nú vont að togna. Degi síðar bar hún sig frekar aumlega og þá var nú hringt í doktorinn sem myndaði daginn eftir, þar sást að sprunga er neðst í leggnum.
Þar sem árið hefur verið nokkuð gott við okkur í kreppunni fórum við í útrás til Reykjavíkur og versluðum Patroljeppa með aðstoð eins ríkisbankans. Við erum því ekki lengur eins og síld í tunnu og brunum um bæinn með bros á vör, þangað til við festum okkur, en það er víst hægt að festa sig á jeppa.
Kæru vinir í kvöld verður áramótagleði í Víkurtúni 2, Bassastaðabændur og þeirra afkomendur mæta utan Guðbjargar,Rögnu og þeirra barna. Pabbi og mamma kíkja þegar farið verður að sprengja. Við sendum góðar nýársóskir til allra ættingja og vina.
Óver end át....kv. Sal
2.1.2009
Gleðilegt ár
Kæru ættingjar og vinir. Margt hefur drifið á dagana á árinu 2008. Veturinn var annasamur að venju við skíðaæfingar, skíðamót og leikhússtúss en í vetur sýndum við Dýrin í Hálsaskógi með grunnskólanum. Sverrir lét langþráðan draum rætast um að eignast einhverskonar tryllitæki og keypti sér fjórhjól, hann þeyttist svo um allar hlíðar og dali í vor og sumar, en kútveltist síðan niður brekkur og bala í smalamennskunni í haust. Hjólið og Sverrir voru bæði lurkum laminn en gleðin hefur lítið dvínað. Ég hef verið á kafi í alls kyns söngstússi þetta árið, ég söng sigurlagið í hamingjudagalagakeppninni og fór líkt og aðrar stórstjörnur (GusGus) til að taka upp lagið í Tankinum á Flateyri. Kvennakórinn sem ég hef starfað með í 10 ár gaf út disk á árinu sem er reyndar nýkominn út og síðan var ég í bakröddum á disknum Fyrirheit með Bjarna Ómari poppara á Hólmavík. Hann hélt líka flotta útgáfutónleika með stærðar hljóðkerfi, reykvélum og ljósasjóvi og okkur smádívunum á Hólmavík fannst eins og við værum að syngja með Rolling Stones. Eftir nokkur ár er kannski hægt að kaupa gjafapakkningu á öllum diskunum þremur. Við héldum fjölskyldumót í sumar Mýrarkrakkarnir, tilefnið var að mamma varð 80 ára, Grettir bróðir kom til landsins að halda upp á 40 ára stúdentaafmæli, en hann varð líka 60 ára í haust og Halli útskrifaðist sem kennari. Aftan á kortinu má sjá öll þessi gamalmenni. Við smíðuðum okkur sólpall í sumarfríinu og ferðuðumst eitthvað líka, fórum á Ísafjörð í maí á ógleymanlegt nemendamót og til Þorlákshafnar á landsmót en Jakob keppti þar í fótbolta og frjálsum. 8. Ágúst var stór dagur hjá okkur en þá gekk Guðbrandur Emil Sverrisson að eiga Jennifer Land Petersen í Saurbæjarkirkju. Veðrið fallegt og staðurinn svo ekki sé minnst á brúðhjónin sjálf. Allt fór eins og best verður á kosið, fyrir utan dólgslæti í föðurlegg Emils eins og sjá má á mynd á baksíðunni. Eitthvað var um utanlandsferðir en Sverri var boðið í formúluferð til Hochenheim en ég hef nú ekki orðið vör við að hann sé orðinn forfallinn aðdándi þrátt fyrir það, það suðaði svolítið í hausnum á honum fyrst á eftir en hann hristi það af sér á hjólinu. Ég fór í ágúst ásamt nokkrum félögum mínum á vinabæjarmót til Hole í Ringeríki í Noregi þar sem dekrað var við okkur á allan hátt og við skemmtum okkur hið besta, Hole er heimabyggð Haraldar hárfagra, Ólafs Heljarskinns og 2 annara kónga sem ég man ekki nöfnin á. Haustið einkenndist að venju af smalamennsku og rolluragi hjá tengdó en við erum í starfsmannafélagi Bassastaðabúsins ásamt öðru góðu fólki. Ég söng að venju í söngvarakeppninni en tapaði fyrir ungri gellu í latexgalla með flegið niður á nafla. Spurning með að fara að gera eitthvað í átfittinu. Af börnunum er allt gott að frétta. Andri býr nú í 101 Reykjavík og stefnir á framhaldsskóla eftir áramót eftir nokkuð hlé. Hann á 1-2 annir eftir til að útskrifast. Hann fór á Hróarskelduhátíðina í sumar og eftir það, Evrópuferð með vinum sínum. Hann hefur svo verið að vinna með pabba sínum við húsamálun. Emil og frú eru í Kristianssand og starfa þar bæði í verkfræði og tækniteiknarageiranum. Jakob er í 8. Bekk og fermist á hvítasunnudag 2009, hann er að læra á harmónikku og trompet í tónskólanum og eins og gefur að skilja, frekar hávaðasamt á heimilinu þegar hann æfir sig. Kristín þverflautuleikari er í 5. bekk og verður sem sagt 11 ára í vetur, hún er duglegri að æfa sig á flautuna og aðeins hljóðlátari. Júlíana er svo á síðasta ári í leikskólanum. Hún hefur verið að gera garðinn frægan á árinu, en hún er eitt af börnunum á risamyndunum á Lækjartorgi og einnig kom hún fram í jóladagatali Strandagaldurs, sem er mynd um strákinn Tuma sem ræðir við krakkana um jólasveinana og fleira.
13.8.2008
Brúðkaupið
Ekki tolldi Emil hér
því engin var hér Jennifer.
Út til Noregs fljótt hann fer
og finnur sína Jennifer.
Æskuþokka á sér ber
yndisfríða Jennifer.
Síðan enga Emil sér
aðra og snýst um Jennifer.
Í Hallgrímskirkju hann nú er
við hliðina á Jennifer.
Hann svo reynist vonum vér
verðugur maki Jennifer.
(með bestu kveðjum frá langafa Sverri, Hólmavík. Auðvitað kveðja frá langömmu Rósu líka)
Ég set inn fleiri myndir á morgun og skrifa kannski sumarpistil í leiðinni. Óver and át

11.6.2008
Alveg að "meikaða#
10.6.2008
Allt að gerast!!!
Í dag er mamma mín 80 ára gömul. Hún er væntanlega í felum fyrir vinum og ættingjum einhversstaðar á norðurlandi. Ég sendi henni innilegar afmæliskveðjur í tilefni dagsins og vona að hún eigi dásamleg ár framundan. Ég set hérna brúðkaupsmyndina af þeim gömlu á brúðkaupsdaginn sem var að mig minnir þann 23. mars 1948. Þau áttu sem sagt demantsbrúðkaup í vetur.
Við ætlum að halda heljarinnar veislu á laugardaginn á Akureyri, í tilefni afmælanna. Grettir stærsti bróðir mætir líka. Hann ætlar að halda upp á 40 ára M.A stúdentinn í leiðinni, Sæmi elsta barnabarnið og Stína mágkona koma líka. Ég hef ekki hitt þau síðan 1998 þegar Kristín var nokkura mánaða. Hér er mynd af Gretti, afskaplega sætum og krúttlegum og ein af honum á unglingsárunum. Hann verður síðan 60 ára þann 27. september n.k.
Danni, Ingvar, Halli í miðjunni, pabbi, Óli, Atli og mamma (tekið 1965 ca)
Og hérna erum við í tjaldi á Mýri ca 1969-1970 um það bil sem Sverrir minn er að koma í heiminn. Halli, Óli og Atli og ég neðar.
Lilja tengdamóðir mín verðu líka 60 ára núna 15. júní. Ég set hérna æðislega mynd af þeim tengdapabba í tilhugalífinu. Alveg svakalega sæt.

